Góðar fréttir fyrir oss græningja

Þetta eru dásamleg tíðindi sem við getum fyrst og fremst þakkað formanni okkar en markmiðið er fimmhundruðkall á líterinn fyrir lok næsta árs.

Á næsta ári munum við græningjar kynna róttækar tillögur sem munu aðstoða bifreiðareigendur við að losna við ökutæki sín úr landi. Bifreiðaeign þjóðarinnar hefur verið fáránlega mikil og skiptir þá engu hvort um græn ökutæki sé að ræða. Fólk á einfaldlega að labba meira eða taka strætó.


mbl.is Skeljungur hækkar í 268,7 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bensínið í 500 kall

Bensínlíterinn í 500 kall yrði eitt mesta umhverfisafrek VG frá upphafi vega. Fólk á að labba meira, taka strætó, sitja í hjá vinum og vinnufélögum og auðga sjálft sig að orku um leið og við vörðum leiðina til framtíðarlandsins.


Algjört klúður en auðvitað átti að kjósa konu

Það mátti svosem búast við því að samtök íþróttafréttamanna myndu kjósa karl í heiðurssætið rétt enn eina ferðina og nú verður hinn femíniski armur flokks okkar að taka í taumana með harkalegum stjórnvaldsaðgerðum gegn þessum gerspillta karlaklúbb. Við krefjumst jafnréttis.
mbl.is Heiðar íþróttamaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað á loka öllum hálendisvegum nema Kjalvegi

Þetta er svo borðleggjandi fyrir okkur græningja að hið hálfa væri nóg og auðvitað átttum við að ganga alla leið strax og banna allan akstur um hálendið að Kjalvegi undanskildum. Ökutæki eiga ekkert erindi um hálendið en þeim fylgir eldsneytisbrennsla, mengun, og svo rýfur jeppagnýrinn kyrrðina fyrir okkur hinum sem göngum hinn vinstri græna og hreina veg.

Formaður okkar gekk yfir landið og hálendið um árið eins formenn eiga að ganga.  Hann gekk meira að svo langt og grænt að hann gekk örna sinna þar sem hann var staddur hverju sinni og skildi eftir um sig áburð fyrir lífriki framtíðarlandsins með reglulegu millibili. Þetta er sú fyrirmynd sem við styðjumst við í þeim lokunaraðgerðum sem nú líta dagsins ljós.

Ef fólk nennir ekki að labba um hálendið þá á það engan rétt á að skoða það eins og lokunartillögurnar bera með sér og auðvitað átti að ganga miklu lengra í þessum fyrsta áfanga við að koma jeppunum úr umferð. En einhversstaðar verður að byrja.


mbl.is Engin sátt um Vonarskarð og Vikrafellsleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á þessum lista ætti Steingrímur að vera með réttu

Það eru vonbrigði að foringi vor Steingrímur skuli ekki vera á lista yfir helstu hugsuði stjórnmálanna en hann er vel að því kominn rétt eins og Jóhanna. Það er jú Steingrímur sem er leiðandi í afturhvarfi þjóðarinnar til fornra gilda og góðar siða og það verður Steingrímur sem mun sýna heimsbyggðinni að hér býr þjóð sem þarf hvorki hátt atvinnustig né mikið fé á milli handa til að finna hagsæld.

Forfeður okkar þurftu ekki glys nútímans til að finna hamingju, þeir fundu hana í eigin svita og blóði og það er nákvæmlega það sem Steingrímur mun kenna þjóðinni á ný.

Góðar stundir

 


mbl.is Jóhanna á lista yfir pólitíska hugsuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skorum á samtök íþróttafréttamanna að kjósa konu sem íþróttamann ársins

VG er feminískur flokkur og auðvitað eigum við að beita okkur fyrir því að samtök íþróttafréttamanna kjósi konu þetta árið en þær eru einungis fjórar sem hafa fengið þennan eftirsótta titil frá upphafi. Sú fyrsta var Sigríður Sigurðardóttir handknattleikskona sem hampaði titlinum árið 1964 og síðast var það Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona sem sigraði árið 2007.

Samtök íþróttafréttamanna hafa kosið 30 karla sem íþróttamenn ársins. Kannski vegna þess að samtökin hafa aldrei haft konu í sæti formanns, en auðvitað er það verk stjórnvalda að sjá til þess að jafnrétti sé virt á öllum sviðum og okkar áhrif skulu síst vanmetin í þeim efnum. Þetta er óþolandi staða.


Gamli góði torfbærinn gæti verið lausnin fyrir okkur

Þegar hægrimenn hæða okkur í VG segja þeir gjarna við séum á leið í torfbæinn aftur en menn skyldu fyrst skoða kosti þeirra og hæða svo því þetta er mál sem við höfum skoðað afar vel í gegnum tíðina.

Nokkrir VG félagar úr grasrótinni hafa undanfarið ár unnið með verkfræðingum, smiðum og steinhleðslumönnum að því markmiði að endurvekja torfbyggingar sem raunhæfan kost fyrir íslenskar fjölskyldur og fyrstu niðurstöður lofa góðu.

Við erum ekki bara að ræða um 60-70% lægri byggingarkostnað á hvern fermetra heldur einstaklega lágan kyndingar og rekstrarkostnað að auki. Auðvitað yrði hið nýja torfhýsi uppfært að nútíma byggingarefnum innanstokks en ytra útlit yrði ekki svo ýkja frábrugðið því sem við þekkjum frá fornu fari, að skorsteini frátöldum.

Byggingaraðferðin býður líka heim þeim möguleika að fjölskyldan öll geti tekið höndum saman um bygginguna, lækkað byggingakostnað og sameinast við að upphefja gamla siði um leið og hún reisir sér öruggt skjól til lengri framtíðar. Ég hef síðustu daga unnið í sjálfboðavinnu við tilraunahúsið á Hellu og leyfi félögum mínum að sjá árangurinn í máli og myndum um leið og þetta tekur á sig endanlega mynd.

Hugmynd okkar er líka sú að koma upp tilraunahverfi til að byrja með eða 20-50 húseiningar og þegar höfum við viðrað hugmyndina við nokkur sveitarfélög en nóg er til af hentugu byggingarlandi. En þetta gæti líka verið góð tilraun til rannsóknar á náttúrulegum uppvaxtarskilyrðum barna því hverfi af þessu tagi gæti strax myndað sér þá sérstöðu að vera t.d. án sjónvarps eða netsambands. Róttæk hugmynd en uppeldislega áhugaverð tilraun og tækifæri sem vart má af missa. Hugsanlega tækifæri til lærdóms fyrir öll vestræn ríki.

Góðar stundir


Óþarfa pælingar um stjórnarslit

Þótt Samfylkingin sé treg í taumi þá erum við á góðri leið með að ná okkar helstu markmiðum og koma þjóðinni á þann stað sem hún þarf að vera til að þroskast frá peningafirringunni. Formaður vor hefur áður róað Jóhönnu og svo verður aftur nú. Þjóðin hefur ekki enn hlotið þann lærdóm sem hún þarf til að ganga til kosninga að nýju.  Fátækt og atvinnuleysi er okkar sterkasta tæki til að kenna fólki að lifa grænu lífi um alla framtíð.
mbl.is Alltaf má fá annað föruneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er tími til kominn að VG rödd heyrist á moggablogginu

Stórkostlegur áfangasigur er í höfn, Kínverjar munu leita landakaupa í Svíþjóð eða Finnlandi og þökk sé Ögmundi. En persónulega var ég aldrei efins hann segði nei því hann hann Ögmundur hollur sínum uppruna. Frá fyrsta degi var ljóst að hann stæði með sínu fólki.

Þessi kennslustund í boði VG verður Kínverjum víti til varnaðar að ekki skuli þeir leita lands aftur á litlu eyjunni okkar. En Ögmundur mætti þó vera skýrari eins og forystan öll. Við viljum ekki útlendinga með loðið fé og við viljum ekki stóriðju og það er ekki svo ýkja flókið að koma því á framfæri þótt stöku þingfulltrúar haldi því til hlés.  Manngildi er auðgildi æðra og barátta okkar á ekki bara að snúast um að verjast ásókn nýrra orku eða landkaupenda eða heldur að koma stóriðjunni úr landinu. Það er okkar mikilvægasta langtímamarkmið og því má ekki gleyma.

Þótt atvinnulaus sé þá stend ég sem klettur með hugsjónum okkar og draumum. Það er nefnilega stórlega vanmetið að vera heima með fjölskyldunni og þurfa ekki að vinna. Allt atvinnulaust fólk hefur allt tækifæri til að rækta sig frá ánetjun til kapítaliskra gerviþarfa og nálgast móður jörð á ný með þeirri auðmýkt sem skapari hennar krefst. Stöðug gagnrýni hægrimanna á atvinnuleysi er ekkert ennað en frekja, græðgi og skammsýni að mati okkar í Vinstri hreyfingunni Grænu framboði.

Í raun ættu allir að prófa að vera atvinnulausir um lengri eða skemmri tíma en það er trú okkar að föst vinna þurfi ekki endilega að vera af hinu góða. Hin raunverulegu forréttindi eru fólgin í frelsi til að anda að sér hreinu lofti í dásamlegri náttúru frjálsrar þjóðar. Að uppgvötva sjálfan sig á ný sem lifandi manneskju úr viðjum samfélags sálarlausrar tækni og peningahyggju.

Það er að okkar mati hægt að kenna flestu fólki að lifa hamingjusömu lífi með lítið fé á milli handa og það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra í VG.

Góðar stundir. 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband